Sítrónuostakaka í boði Sigurveigar og Inga
Matgæðingar vikunnar í tbl 12, 2023, eru Króksararnir Sigurveig Anna Gunnarsdóttir og kærastinn hennar Ingi Sveinn Jóhannesson. Sigurveig er dóttir Guðnýjar og Gunna Gests og Ingi Sveinn er sonur Fríðu og Jóa á Gauksstöðum. Þau búa saman í London þar sem Sigurveig er að gera góða hluti sem tískuljósmyndari. „Við erum matarfólk og finnst fátt skemmtilegra en að elda,“ segir Sigurveig.
Skráðu þig inn til að lesa
Þú getur valið um þrjár áskriftarleiðir:
Leið 1 (blað og rafrænn aðgangur)
Færð blaðið inn um lúguna í hverri viku, rafrænan aðgang að pdf útgáfunni og að læstum fréttum inn á feykir.is.
Kostar 2.895 kr. á mánuði m/vsk (2.608 án/vsk).
Það eru alltaf fjögur blöð í mánaðaráskriftinni.
Leið 2 (rafrænn aðgangur að pdf útgáfu blaðsins)
Færð rafrænan aðgang að pdf útgáfunni að Feyki og að læstum fréttum inn á feykir.is.
Kostar 1.990 kr. á mánuði m/vsk. (1.793 kr. án/vsk).
Leið 3 (rafrænn aðgangur í viku)
Færð rafrænan aðgang að nýjasta tbl. Feykis og læstum fréttum í viku inn á feykir.is.
Kostar 555 kr. vikan m/vsk. (500 kr. án/vsk).
Fleiri fréttir
-
Mexíkósúpa og gamaldags karamella
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Í matinn er þetta helst, Lokað efni 27.07.2024 kl. 14.32 siggag@nyprent.isÞað er Inga Jóna Sigmundsdóttir sem er matgæðingur Feykis í tbl 33 í fyrra. Inga er fædd á því herrans ári 1970 og er alin upp á besta staðnum, Sauðárkróki, eins og hún orðaði það sjálf. Þar hefur hún alltaf búið fyrir utan fjögur ár, tvö ár á Akranesi og tvö ár í Moelven í Noregi. Inga er leikskólaliði á leikskólanum Ársölum og á fjögur börn, Sævar 27 ára, Ásrúnu 26 ára, Eyþór 19 ára og Evu Zilan 11 ára.Meira -
Valdís Ósk Óladóttir ráðin í starf ráðgjafa í barnavernd hjá Skagafirði
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla 26.07.2024 kl. 13.07 siggag@nyprent.isÁ vef Skagafjarðar segir að Valdís Ósk Óladóttir hefur verið ráðin í starf ráðgjafa í barnavernd á fjölskyldusviði hjá sveitarfélaginu Skagafirði. Valdís er með BSc. gráðu í viðskiptalögfræði frá Háskólanum á Bifröst og ML gráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Valdís Ósk hefur góða þekkingu á barnaverndarlögunum og skrifaði meistaraprófsritgerð sína um réttindi barna og þvingunarúrræði skv. barnaverndarlögum. Samhliða námi sínu hefur Valdís Ósk starfað hjá Barna- og fjölskyldustofu og á meðferðarheimilinu Krýsuvík og öðlast þar reynslu í ráðgjöf og vinnslu barnaverndarmála.Meira -
Forvarnaráætlun fyrir leik/grunn og framhaldsskóla á Norðurlandi vestra
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla 26.07.2024 kl. 11.44 siggag@nyprent.isFélags- og skólaþjónusta Austur-Húnvetninga fékk styrk upp á fjórar milljónir frá Sprotasjóði Rannís í maí 2023 til að vinna að forvarnaráætlun fyrir börn á leik/grunn og framhaldsskólaaldri. Markmið verkefnisins var að búa til sameiginlega forvarnaáætlun fyrir Norðurland vestra til fjögurra ára sem stuðla myndi að farsæld og forvörnum allra barna á svæðinu. Forvarnir eru til alls fyrst og er áætlunin öllum aðgengileg á heimasíðum sveitarfélaganna á Norðurlandi vestra.Meira -
Frítt inn á Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna sunnudaginn 28. júlí
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla 26.07.2024 kl. 11.11 siggag@nyprent.isÍ tilefni af hátíðinni Eldur í Húnaþingi sem haldin er þessa dagana verður frítt inn á Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna sunnudaginn 28. júlí. Safnið er opið milli kl. 9-17 og er staðsett á Reykjum í Hrútafirði í Húnaþingi vestra, tæpum kílómeter frá þjóðvegi eitt og leggur safnið áherslu á líf og störf fólks og síðari hluta 19. aldar og byrjun þeirrar 20.Meira -
Andri Már stígur á stokk í Mexíkó
Feykir hefur aðeins fylgst með ævintýrum Andra Más Sigurðssonar / Joe Dubious á mexíkanskri grundu. Andra kannast margir við sem tónlistarmann og hann var eftirminnilega í framlínu hljómsveitarinnar dáðu, Contalgen Funeral, sem margir sakna. Andri flutti til Mexíkó árið 2019 og bjó í þorpinu La Erre í Guajajuato-fylki síðast þegar Feykir tók á honum púlsinn. Í fyrra sögðum við frá því að Andri væri farinn að láta á sér kræla í tónlistinni í Mexíkó og nú spilaði hann á virtri menningarstofnun, El Museo de la Independencia en Dolores Hidalgo – hvorki meira né minna!Meira
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.