Sjálfstæðismenn vilja hendur úr vösum
Á síðasta fundi byggðaráðs Skagafjarðar komu Sjálfstæðismenn í Skagafirði á framfæri áhyggjum sínum yfir rekstarniðurstöðu sveitasjóðs fyrstu fjóra mánuði ársins 2011 sem Sjálfstæðismenn segja vera helmingi hærri en áætlanir fyrir tímabilið gerðu ráð fyrir.
Þá segja þeir að fyrirsjáanlegt sé að launahækkanir sem tóku gildi nú í vor muni auka halla sveitarsjóðs enn meir á síðari hluta ársins. „Kostnaðarhækkanir samhliða fyrirsjáanlegum samdrætti í tekjum sveitarsjóðs munu stefna fjárhag sveitarfélagsins og þar með velferð íbúanna í óásættanlega stöðu verði ekkert að gert. Sjálfstæðismenn skora á fulltrúa meirihlutans í sveitarstjórn Skagafjarðar að taka hendur úr vösum og leggja strax fram raunhæfar tillögur til hagræðingar í rekstri sveitarfélagsins.“