"Sjómenn annars flokks borgarar í augum landskjörstjórnar"
Eyþór Jóvinsson bloggari hjá DV bloggar um það í dag að í annað skipti verði gangið framhjá sjómönnum landsins þegar gengið er til þjóðaratkvæðisgreiðslu. Fyrst í kosningum til stjórnlagaþings og nú þegar á að kjósa um Icesave.
Gefum Eyþþóri orðið; „Hvert er vandamálið við að hafa atkvæðagreiðsla utankjörfundar nægilega langa til að allir landsmenn geti kosið? Það gefur auga leið að þrjár vikur duga skammt þegar flestir frystitogarar eru á sjó í 4-5 vikur, oft langt frá landi.
Þetta er öllum fyllilega ljóst, því skil ég ekki vakir fyrir kjörstjórn með því að brjóta svona ítrekað á sjómönnum. Ástráður sem fór fyrir misheppnuðum stjórnlagaþingskosningum veit vel að 3ja vikna atkvæðagreiðsla utankjörfundar er ekki nægilega löng.
Maður hefði nú vonað að sá sem er endurkjörinn í kjörstjórn myndi læra af fyrri mistökum og reyna að standa sómasamlega að næstu kosningum. - En svo er víst ekki.
Sjómenn landsins, eru og verða alltaf annars flokks borgara í augum landskjörstjórnar.“