Sjónhorni seinkar
feykir.is
Skagafjörður
29.10.2015
kl. 08.25
Beðist er velvirðingar á því að Sjónhorni seinkar í dag en það kom upp bilun þegar setja átti blaðið saman. Að sjálfsögðu er sama vandamálið að plaga Feyki og því einhver bið eftir honum líka.
Unnið er að viðgerð og vonandi verður Sjónhornið tilbúið í dreifingu um hádegi. Þeir sem ekki geta beðið ættu hvað úr hverju að geta skoðað Sjónhornið hér á netinu.