Skagafjarðarrallí á morgun
Nú er komið að hinu árlega Skagafjarðarralli Bílaklúbbs Skagafjarðar sem að þessu sinni er haldið með aðstoð Vörumiðlunar og Kaffi Króks. Keppnin gildir til Íslandsmeistara í rallakstri og fer fram á morgun laugardag.
Keppni í rallý skiptist í meginatriðum í tvo hluta, sérleiðir og ferjuleiðir. Það er á sérleiðum sem hin eiginlega keppni fer fram, þær eru lokaðar utanaðkomandi umferð á meðan á keppni stendur og þar reyna keppendur að aka sem hraðast, ná sem bestum tíma. Bílarnir eru ræstir inn á sérleiðirnar með einnar mínútu millibili og sigurvegarar þegar upp er staðið er sú áhöfn sem var fljótust að aka keppnina, þ.e. með minnstan samanlagðan tíma eftir allar sérleiðir. Sérleiðirnar eru hins vegar tengdar saman af ferjuleiðum. Ferjuleiðir eru eknar í almennri umferð og þar þurfa ökumenn að lúta öllum almennum umferðarreglum og því þurfa öll ökutæki í ralli að hafa staðist bifreiðaskoðun, auk sérstakrar öryggisskoðunar vegna keppninnar. Í hverjum bíl er tveggja manna áhöfn, ökumaður og aðstoðarökumaður. Einnig tilheyrir hverju keppnisliði þjónustulið sem sér um viðgerðir á bílnum á milli leiða.
Sérleiðir keppninnar Km Fyrsti bíll Lokun vegar Opnun vegar
Mælifellsdalur I 25 10:00 09:30 15:30
Mælifellsdalur II 25 11:25 09:30 15:30
Mælifellsdalur III 25 12:50 09:30 15:30
Mælifellsdalur IV 25 14:15 09.30 15:30
Nafir I 2,4 16:25 16:00 17:30
Nafir II 2,4 17:00 16:00 17:30
Það er rétt að ítreka að á þeim tíma sem lokun sérleiðar varir er almenningi óheimilt að aka um leiðina og er skylt að hlýta fyrirmælum starfsmanna keppninnar þar um.
Endamark verður í Vörumiðlun kl 17:30 og þar gefst tækifæri til að skoða keppnisbílina.
Einnig er stjórnstöð rallsins í Vörumiðlun og hægt að kíkja við til að fá upplýsingar og stöðu keppninnar. Einnig á netinu á www.tryggvi.org/rallytimes
Að þessu sinni eru 15 áhafnir skráðar til leiks. Meðal keppenda er að finna gamlareynslubolta í bland við reynsluminni ökumenn, keppendur í harðri baráttu um stig í Íslandsmeistaramótinu jafnt sem aðra sem eru þarna til að skemmta sér og öðrum.
Rásröðin verður eftirfarandi:
Rásnr # Ökumaður Aðstoðarökumaður Bifreið Flokkur
1 1 Jón B Hrólfsson Halldór G Jónsson Subaru Impreza Stý N
2 2 Hilmar Bragi Þráinsson Davíð Jón Ríkharðsson MMC Lancer Evo 7 N
3 27 Sigurður B Guðmundsson Ísak Guðjónsson Lancer Evo 7 X
4 18 Jón Örn Ingileifsson Sigurjón Þór Þrastarson Mitsubishi Lancer Evo 6 N
5 99 Valdimar Jón Sveinsson Heimir Snær Jónsson Subaru Impreza Prodrive N
6 4 Einar Sigurðsson Símon Grétar Rúnarsson Audi Quattro S2 N
7 8 Hlöðver Baldursson Baldur Arnar Hlöðversson Toyota Corolla Eindrifs
8 12 Þorsteinn P Sverrisson Ragnar Sverrisson Subaru Impreza Non Turbo
9 30 Baldur Haraldsson Guðrún H Magnúsdóttir Subaru Impreza Non Turbo
10 22 Bragi Þórðarson Magnús Þórðarson Subaru Impreza Non Turbo
4 mín á milli
11 24 Guðmundur Orri McKinstry Þórður Andri McKinstry Tomcat Tvr RS 100 J
12 9 Sighvatur Sigurðsson Úlfar Eysteinsson MMC Pajero sport J
13 26 Guðmundur S Sigurðsson Guðleif Ósk Árnadóttir Jeep Cherokee J
14 14 Kristinn Sveinsson Brimrún Björgúlfsdóttir Jeep Grand Cherokee X
15 23 Þórður G Ingvason Björn Ingi Björnsson Toyota Hilux J
Rásnúmer gefur til kynna í hvaða röð keppendur hefja keppni. # er það númer sem keppendur líma á bíla sína og ræðst m.a. af árangri keppandans í fyrrri keppnum.
upplýsingar hjá keppnisstjóra í síma 8625771