Skagfirðingur hlýtur styrk úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta HÍ
Tuttugu og fjórir afburðanemendur úr framhaldsskólum víðs vegar af landinu tóku við styrkjum úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands við hátíðlega athöfn á Háskólatorgi í gær. Nemendurnir hefja allir nám í Háskóla Íslands í haust. Samanlögð styrkupphæð nemur rúmum 8,6 milljónum króna.
Nemendurnir eiga það sameiginlegt að hafa náð framúrskarandi árangri á stúdentsprófi. Hver styrkur nemur 300 þúsund krónum en auk þess verður greitt skráningargjald sem er 60 þúsund krónur.
Af þeim 24 styrkþegum sem hljóta styrk að þessu sinni eru tólf dúxar og tveir semidúxar í framhaldsskólum sínum síðustu tvö skólaár. Þessir tilvonandi nemendur Háskóla Íslands koma úr þrettán framhaldsskólum úr öllum landsfjórðungum og sækjast eftir inngöngu í ellefu ólíkar námsleiðir. Þrettán konur og ellefu karlar eru í hópnum.
Skagfirðingurinn Pála Margrét Gunnarsdóttir er meðal þeirra nemenda sem hlaut styrk við Háskóla Íslands. Pála var dúx Framhaldsskólans á Laugum í vor en hún lauk námi á tveimur og hálfu ári. Hún hlaut viðurkenningar fyrir góðan námsárangur í fjölmörgum greinum. Pála lauk stúdentsprófi um síðustu áramót og stundaði nám við Hússtjórnarskólann í Reykjavík á vorönn. Þá hefur hún tekið þátt í barnastarfi þjóðkirkjunnar. Pála stefnir á nám í uppeldis- og menntunarfræði í haust.
Styrkhafarnir eru: Alexander Elís Ebenesersson, Andri Oddur Steinarsson, Anna Rut Arnardóttir, Arna Rut Emilsdóttir, Arnar Snær Ágústsson, Árni Björn Höskuldsson, Ásdís Sæmundsdóttir, Birna Helga Jóhannesdóttir, Birta Bæringsdóttir, Bjarni Örn Kristinsson, Fjóla Kristín B. Blandon, Gísli Þór Þórðarson, Guðrún Valdís Jónsdóttir, Guðrún Svanhvít S. Michelsen, Guðrún Þóra Sigurðardóttir, Halla Björg Sigurþórsdóttir, Hildur Þóra Ólafsdóttir, Ingvar Hjartarson, Jón Ágúst Stefánsson, Jón Áskell Þorbjarnarson, Pála Margrét Gunnarsdóttir, Pétur Rafn Bryde, Sigurður Ragnarsson og Unnur Bjarnadóttir.