Skagfirskir strengir með þakkartónleika á morgun
Í ágúst síðastliðnum hélt hópur Skagfirskra strengja skipaður tólf stúlkum, kennara og tveimur foreldrum í ferðalag til Árósa í Danmörku. Tilgangurinn var að halda tónleika og skoða tónlistarskólann í Árósum auk þess að skemmta sér og kynnast nýjum hliðum tónlistarinnar. Hópurinn hélt þrenna tónleika auk þess að hitta nemendur tónlistarskólans í Árósum og spila með þeim. Hópurinn þakkar stuðninginn með þakkartónleikum á morgun.
Farið var á söfn í Danaveldi og m.a haldnir tónleikar í Den gamle by og listasafnið Aros skoðað og að sögn Kristínar Höllu Bergsdóttir heppnaðist ferðin í alla staði mjög vel og fékk hópurinn einstaklega gott veður. "Alls staðar voru nemendur til fyrirmyndar og að sjálfsögðu okkur Skagfirðingum til sóma," segir Kristín Halla.
Til að fjármagna ferð sem þessa var sótt um styrki á fjölmörgum stöðum auk annarra fjáraflana og langar hópinn að þakka fyrir sig með þakkartónleikum þriðjudagskvöldið 15.október kl. 20 í Tónlistarskólanum á Sauðárkróki. Þar verður einnig fjallað um ferðina, myndasýning verður í boði og kaffi og léttar veitingar og eru allir velkomnir.
Skagfirskir strengir vilja koma sérstöku þakklæti til: Menningarráðs Skagfirðinga í Varmahlíð, Menningarráðs Norðurlands vestra, Menningarsjóðs Sparisjóðsins, Kaupfélags Skagfirðinga, Akrahrepps, Sveitarfélagsins Skagafjarðar, Vinnuvélar Símonar, Arion banka, Fisk og þeirra fjölmörgu sem styrktu hópinn með einum eða öðrum hætti.