Skagfirskt grobb og þingeyskt mont
Um síðustu helgi héldu kórarnir, Hreimur úr Þingeyjasýslu og hinn skagfirski Heimir, tónleika í Miðgarði undir yfirskriftinni Stálin stinn. Vel var mætt og mikil stemning í húsinu.
„Þeir stóðu sig eins og hetjur,“ segir Gísli Árnason, formaður Heimis, hæstánægður með frammistöðu kóranna. Hann segir tilurð þess að kórarnir syngi saman nú hafi verið þannig að Heimisfélagar hafi heimsótt kollega sína í Þingeyjarsýslunni í fyrrahaust og þá hafi það borist í tal að halda sameiginlega tónleika að ári. Þann 19. nóvember munu svo kórarnir endurtaka leikinn eystra, í félagsheimilinu Ýdölum.
Hér fyrir neðan má sjá og heyra sýnishorn af samsöng Heimis og Hreims en vídeóið er tekið af Facebooksíðu Heimis.
Hér er sýnishorn af samsöng Heimis og Hreims. Veskú.
Posted by Karlakórinn Heimir on 7. nóvember 2016