Skagfirskt matar- og skemmtikvöld í Reykjavík
Það verður mikil gleði i Kiwanishúsinu Engjateigi laugardagkvöldið 8. október nk., því þá stendur Skagfirðingafélagið í Reykjavík fyrir Skagfirsku matar- og skemmtikvöldi.
Þar verður boðið uppá skagfirskt veisluhlaðborð að hætti Jóns Dan, undir ljúfum tónum Ásdísar Guðmundsdóttur. Palli Friðriks mun vera þar með glens og grín og svo verður dansað við sveiflu Geirmundar Valtýssonar, fram á rauða nótt. Veislustjóri er Vilhjálmur Egilsson.
Húsið opnar kl. 18:30 og borðhald mun hefjast kl.20:00. Miðasala er í fullum gangi þar sem verð fyrir mat og skemmtun einungis 4900 kr. Þú einfaldlega leggur inn á reikning: 0140-26-1752, kt: 580269-5759 og sendir svo staðfestingu á skagfirdingafelagid@mail.com.
Nánari upplýsingar veita Lúlla, formaður Skagfirðingafélagsins (s: 898-1766), Hulda (s: 866-0114) eða Radda, (s: 692-3924).