Skál dalsins
Feykir rakst á forvitnilega færslu á Fésbókinni þar sem sagt er frá Skagfirðingi sem kom inn í verslun til að kaupa sér jakka. Það í sjálfu sér er ekki í frásögur færandi nema að þegar hann var búinn að ljúka kaupunum kvaddi hann með orðunum „Skál dalsins!“. Var sagt að það væri frasi úr Austurdal í Skagafirði, þaðan sem maðurinn er.
Margir hafa velt fyrir sér um hvern var að ræða en við eftirgrennslan um þann ágæta mann kom í ljós að þarna var á ferðinni Skúli Steinþórsson fv. flugmaður ættaður úr Skagafirði, (Víðivöllum, Skatastöðum og Steinsstöðum), en aldrei búið í Skagafirði. Til gamans má nefna að hann er faðir þeirra Ólafar Rúnar fréttaþulu, Steinþórs Skúlasonar forstjóra Sláturfélags Suðurlands og Brynju Sifjar rithöfundar en hún hefur skrifað bækurnar um ævintýri unglingsstúlkunnar Nikký
Færslan frá 66N er eftirfarandi:
„Þetta er hann Skúli frá Skagafirði. Hann heimsótti okkur áðan eftir að hann frétti að Kríu jakkinn væri kominn aftur. Skúli er klæddur í Kríu jakka sem hann keypti fyrir um 25 árum í verslun okkar sem þá var á Skúlagötu. Þetta er því líklegast með fyrstu Kríu jökkunum sem voru gerðir en við byrjuðum að framleiða þá um 1991. Honum fannst þetta tilvalið tækifæri til að uppfæra í nýja jakkann. Að sjálfsögðu mjög ánægður og kvaddi okkur með orðunum „Skál dalsins!“ sem er frasi úr Austurdal í Skagafirði, þaðan sem hann er.“