Skemmdarvargar á ferð
Það hefur vakið eftirtekt á Króknum að ártalsljósin sem eru á Nöfunum fyrir ofan sundlaugina og kveikt var á fyrir nokkru, loga ekki í dag. Ástæðan er sú að skemmdarvargar voru á ferð og skemmdu tengikassa.
Í tengikassanum er rofi sem notaður er á áramótum til að skipa yfir á nýtt ártal og er hann staðsettur undir ljósunum og hefur sá sem illvirkið framdi þurft að hafa töluvert fyrir athæfi sínu. Gunnar Pétursson verkstjóri hjá Svf. Skagafirði sagði að þetta hafi uppgötvast í gærmorgun. –Það virðist sem notuð hafi verið verkfæri til að sprengja upp kassann þar sem um þykkan krossvið er að ræða og skrúfurnar dregnar upp, sagði Gunnar.
Verið er að gera við kassann og verða ljósin komin á sinn stað innan tíðar og fá vonandi að vera í friði.