Skemmtilega fábjánalegt plott sjávarútvegsráðherra

Er Alþingi orðið að fæðingardeild þorska? Þetta er spurning sem Sigurjón Þórðarson formaður Frjálslynda flokksins leggur fram á bloggi sínu sigurjonth.blog.is í dag. Margt sérkennilegt kemur frá Alþingi þessa daganna, segir Sigurjón og bendir á að þingmenn virðist sjá hverjir í öðrum hryssur, ketti og beljur.

Sigurjón er ekki sáttur við framgöngu Jóns Bjarnasonar sjávarútvegsráðherra við framlagningu kvótafumvarps og telur hann hafa ruglast í ríminu á öllu þessu skepnutali enda búfræðingur að mennt.

„Núna telur hann að það megi auka kvótann við það eitt að samþykkja frumvarp sem fáir hafa séð.  Engu líkara er á málflutningi Jóns Bjarnasonar að við samþykkt frumvarpsins þá fjölgi þorskinum í hafinu í kringum Ísland.  Leyniplaggið fer að verða æ meira spennandi en mögulega felur það í sér einhver ljósmóðurstörf þingmanna“, segir Sigurjón og finnst plott Jóns Bjarna til þess að drífa leyniplaggið um stjórn fiskveiða í gegnum þingið án umræðu í samfélaginu í raun vera skemmtilega fábjánaleg.

Fleiri fréttir