Skemmtun í tali og tónum að Löngumýri

Kirkjukór Glaumbæjarprestakalls og barnakór Varmahlíðarskóla munu syngja á tónleikum að Löngumýri næstkomandi sunnudag klukkan 15:00. Efnisskrá tónleikanna verður fjölbreytt og skemmtileg í tali og tónum.

 

Meðal efnis mun Atli Gunnar Arnórsson segja frá ferð kirkjukórsins til Vesturheims á sinn einstaka hátt og Sigfús Pétursson syngur einsöng.

Kórstjórar eru þau Helga Rós Sigfúsdóttir og Stefán R. Gíslason og hljómsveit skipa þeir Friðrik Þór Jónsson, Rúnar Pétursson og Stefán R. Gíslason en kynnir verður Gísli Gunnarsson.

Eftir tónleikana verður borið fram kakó og meðlæti og miðaverð er 1500 krónur en ekki er tekið við greiðslukortum.

Fleiri fréttir