Skíðagöngumót í Fljótum á skírdag
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir
28.03.2014
kl. 11.30
Í skírdag verður haldið Fljótamót í skíðagöngu. Það er Ferðafélag Austur-Fljóta sem stendur að mótinu. Eins og fram kemur í Feyki í dag má segja að vagga skíðagöngumenningarinnar sé í Fljótum, enda gönguskíðin löngum mikilvæg samgöngutæki þar.
Það er því vel við hæfi að halda mótið í Fljótum, enda fór fyrsta skíðagöngumót landsins fram þar fyrir rúmum hundrað árum. Í Feyki í dag er rætt við Björn Z. Ásgrímsson, einn af skipuleggjendum mótsins. Björn segist vonast eftir góðri þátttöku og góðu veðri og telur að mótið get vel orðið árviss viðburður í Fljótum.