Skilasýning hrossa á Hólum
feykir.is
Skagafjörður, Hestar
24.10.2013
kl. 08.53
Á laugardaginn var fyrsta skilasýning vetrarins haldin á Hólum. Á slíkum sýningum er þeim hrossum sem nemendur hestafræðideildar hafa verið með í tamningu og þjálfun skilað til eigenda sinna. Þau eru þá sýnd í reið, bæði inni í Þráarhöllinni og úti á hringvelli. Síðan gefst eigendum kostur á að ræða við tamningafólkið.
Þau hross sem sýnd voru á laugardaginn hafa verið í frumtamningu eða þjálfun frá upphafi haustannar. Það sem eftir lifir annarinnar munu nemendurnir vinna með hross í grunnþjálfun og skila þeim á sama hátt 14. desember. Allir veru velkomnir á skilasýningar.