Skínandi Skagfirðingar

Tvær kampakátar skagfirskar stúlkur með húfurnar sínar. Ljósm./BFB
Tvær kampakátar skagfirskar stúlkur með húfurnar sínar. Ljósm./BFB

„Skagfirðingar og nærsveitungar hafa alltaf tekið VÍS húfunum vel og þeir létu ekki happ úr hendi sleppa núna frekar en endranær,“ segir Sigurbjörn Bogason þjónustustjóri VÍS á Sauðárkróki.

Fimmta árið í röð gátu viðskiptavinir VÍS með F plús tryggingu nælt sér í skínandi húfu fyrir börnin. „Alla jafna hafa hlutfallslega flestar húfur farið frá skrifstofunni hér á Króknum og á því varð engin breyting nú. Við vorum með um 800 húfur í okkar fórum og eru allar tegundir nema ein upp urin. Ég vil auðvitað að sem flestir skarti þessari höfuðprýði enda eykst öryggið í umferðinni með hverjum kolli sem húfuna ber. Til að bæta svo um betur dreifðum við endurskinsmerkjum með húfunum núna.“

/Fréttatilkynning

Fleiri fréttir