Skipulagslýsing íþróttasvæðisins á Sauðárkróki

Deiliskipulag sundlaugar- og íþróttasvæðis. Mynd: skagafjordur.is
Deiliskipulag sundlaugar- og íþróttasvæðis. Mynd: skagafjordur.is

Skipulagslýsing vegna gerðar deiliskipulags fyrir íþróttasvæðið á Sauðárkróki er nú til kynningar hjá skipulags- og byggingarfulltrúa í ráðhúsinu við Skagfirðingabraut á Sauðárkróki. 

Deiliskipulaginu er ætlað að skapa ramma um væntanlega breytingu á vallarsvæði íþróttasvæðisins þar sem m.a. er fyrirhugað að koma fyrir gervigrasvelli í stað núverandi grasvallar með afmarkandi girðingu og lýsingu á möstrum.

Ábendingar við efni skipulagslýsingarinnar má koma á framfæri skriflega til skipulags- og byggingarfulltrúa eða á netfangið jobygg@skagafjordur.is fyrir miðvikudaginn 8. mars nk.

Sjá nánar HÉR

Fleiri fréttir