Skóflustunga tekin að nýju samlagi

Í dag var fyrsta skóflustungan tekin að nýrri 1300 fermetra viðbyggingu mjólkursamlags Kaupfélags Skagfirðinga sem rísa á vestan við núverandi húsnæði samlagsins. Byggingin kemur til með að hýsa þau tæki sem keypt voru frá Svíþjóð og flyst framleiðslan sem aðallega er smjör- og ostaafurðir í hana.

Að sögn Snorra Evertssonar er hér um nýtt samlag að ræða þar sem flest gömlu tækin verða fjarlægð en þau nýju sem eru frá tveggja til tíu ára koma í staðinn en þau eiga að auka framleiðnina með meiri vinnsluhraða og betri nýtingu hráefnis.

Fleiri fréttir