Skólasetningu Árskóla frestað
Vegna byggingaframkvæmda hefur skólasetningu Árskóla á Sauðárkróki verið frestað til þriðjudagsins 27. ágúst. Í auglýsingu frá skólanum í Sjónhorninu í dag er tiltekið á hvaða tíma hver bekkur mætir.
Þar eru foreldrar nýrra nemenda í 2.-10. bekk jafnframt minntir á að hafa samband við skólann sem fyrst og einnig eru þeir sem þurfa að nota þjónustu Árvistar minntir á að hafa samband við forstöðumann þar sem fyrst.