Skötuveisla í Sveinsbúð
Björgunarsveitin Skagfirðingasveit býður til sinnar árlegu skötuveislu í dag, Þorláksmessu, frá kl. 11:00 – 14:00.
Boðið verður upp á ýmislegt góðgæti svo sem skötu, saltfisk og siginn fisk. Samkvæmt auglýsingu í Sjónhorninu verður einnig pizza á boðstólnum fyrir vandláta.
