Skotvopna- og veiðikortanámskeið á Blönduósi og í Varmahlíð
Umhverfisstofnun stendur fyrir námskeiðum á Blönduósi og Varmahlíð á næstunni. Um er að ræða skotvopnanámskeið sem verður helgina 24. og 25. september á Blönduósi og í Varmahlíð dagana 17., 18. og 22. október. Veiðikortanámskeið fer fram þann 1. október á Blönduósi og 19. október í Varmahlíð.
Skotvopnanámskeið á Blönduósi
Skotvopnanámskeiðið mun fara fram í Grunnskólanum á Blönduósi þar sem Höskuldur B. Erlingsson heldur fyrirlestra. Nemendur munu taka próf og eru þar 75% rétt svör fullnægjandi árangur. Mælt er með því að nemendur lesi „Skotvopnabókina“ áður en námskeiðið hefst en hún er ekki innifalin í námskeiðinu. Verkleg þjálfun fer fram á skotsvæði og mun Skotfélagið hafa umsjón með verklega þættinum. Námskeiðsgjald er 20.000 kr.
Fyrirkomulag námskeiðsins er eftirfarandi:
Laugardagur 24. september
Klukkan 10.00-18.00
Umfjöllunarefni:
- Skotvopn og skotfæri
- Öryggi og meðhöndlun
- Skotfimi og eiginleikar skotfæra
- Vopnalöggjöfin
- Landréttur
- Próf tekið að loknu námskeiði.
Sunnudagur 25. september
Klukkan 10.00
- Verkleg undirstöðuþjálfun á skotsvæði.
Veiðikortanámskeið á Blönduósi
Námskeiðið fer fram í Grunnskólanum á Blönduósi, laugardaginn 1. október, klukkan 11.00-16.00. Fyrirlesari er Arnór Sigfússon. Nemendur munu taka próf og eru þar 75% rétt svör fullnægjandi árangur. Mælt er með því að nemendur lesi „Veiðar á villtum fuglum og spendýrum“ áður en námskeiðið hefst en hún er ekki innifalin í námskeiðinu. Námskeiðsgjald er 10.500 kr.
Fyrirkomulag námskeiðsins er eftirfarandi:
Laugardagur 1. október
Umfjöllunarefni námskeiðsins:
- Bráðin
- Lög reglur og öryggi
- Náttúru- og dýravernd
- Stofnvistfræði
- Veiðar og veiðisiðfræði
- Próf að loknu námskeiði.
Skotvopnanámskeið í Varmahlíð
Skotvopnanámskeiðið mun fara fram í Hótel Varmahlíð þar sem Einar Guðmann heldur fyrirlestra. Nemendur munu taka próf eru þar 75% rétt svör fullnægjandi árangur. Mælt er með því að nemendur lesi „Skotvopnabókina“ áður en námskeiðið hefst en hún er ekki innifalin í námskeiðinu. Verkleg þjálfun fer fram á skotsvæði og Skotfélagið Ósmann mun hafa umsjón með verklega þættinum. Námskeiðsgjald er 20.000 kr.
Fyrirkomulag námskeiðsins er eftirfarandi:
Mánudaginn 17. október 2011
klukkan 18.00-22.00
- Skotvopn og skotfæri
- Öryggi og meðhöndlun
- Skotfimi og eiginleikar skotfæra
Þriðjudaginn 18. október 2010
klukkan 18.00-22.00
- Vopnalöggjöfin
- Landréttur
- Próf
Laugardagur 22. október 2011
klukkan 10.00.
- Verkleg undirstöðuþjálfun á skotsvæði.
Veiðikortanámskeið í Varmahlíð
Námskeiðið fer fram í Hótel Varmahlíð þann 19. október, klukkan 17.00-23.00. Fyrirlesari er Einar Guðmann og eftir kennsluna munu nemendur munu taka próf og er fullnægjandi árangur 75% rétt svör. Mælt er með því að nemendur lesi „Veiðar á villtum fuglum og spendýrum“ áður en námskeiðið hefst en hún er ekki innifalin í námskeiðinu. Námskeiðsgjald er 10.500 kr.
Fyrirkomulag námskeiðsins er eftirfarandi:
Miðvikudaginn 19. október 2011
klukkan 17.00 til 23.00.
- Bráðin
- Lög reglur og öryggi
- Náttúru- og dýravernd
- Stofnvistfræði
- Veiðar og veiðisiðfræði
- Próf
Skráning á námskeiðin fer fram á veiðikort.is.