Skráning á næsta mót Húnvetnsku liðakeppninnar til 13. mars

Næsta mót Húnvetnsku liðakeppninnar verður föstudaginn 16. mars nk. Þá verður keppt í fimmgangi í 1. og 2. flokki og tölt T7 í 3. flokki og tölt T3 í unglingaflokki, fædd 1995 og seinna (fegurðartölt í staðin fyrir yfirferðartölt). Skráningarfrestur er til miðnættis þriðjudaginn 13. mars.

Í fimmgangi verða tveir inn á í einu og verður stjórnað af þul. Prógrammið er: tölt, brokk, stökk, fet og skeið (skeiðið eru tveir sprettir fjær áhorfendum og einn í einu). Töltið verður einnig stjórnað af þul og það verður ekki snúið við og er prógrammið í tölti T7 hægt tölt og svo frjáls ferð á tölti. Í tölti T3 er prógrammið hægt tölt, hraðabreytingar og fegurðartölt,“ segir í fréttatilkynningu.

Skráning fer fram hjá Kolbrúnu Stellu Indriðadóttur, formanni Hestamannafélagsins Þyts, á netfangið kolbruni@simnet.is.

Skráningargjaldið er 1.500 fyrir fullorðna og 500 fyrir unglinga 17 ára og yngri og verður að greiða inn á reikning 0159-15-200343 kt. 550180-0499 áður en mót hefst.

Aðgangseyrir er 1.000 en frítt fyrir 12 ára og yngri.

Fleiri fréttir