Skráning í Vetrartím hafin

Rafræn skráning í íþróttir og tómstundir barna í Skagafirði er hafin í íbúagátt Skagafjarðar og stendur yfir til 12.febrúar nk.

Skráningin fer fram undir Vetrartím en til þess að eiga rétt á Hvatapeningum þarf að skrá börn fædd 1995-2007 í gegnum TÍM-skráningarkerfið, þetta á við um alla iðkendur á þessum aldri. Bent er á að skrá þarf systkini undir sömu kennitölu greiðanda, eigi systkinaafsláttur að gilda.

Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Sveitarfélagsins Skagafjarðar einnig er hægt að senda fyrirspurn á netfangið tim@skagafjordur.is.

Fleiri fréttir