Skráningu að ljúka í félagsmót Svaða
Í kvöld kl 22:00 lýkur skráningu í Félagsmót Svaða sem haldið verður á föstudaginn kemur á Hofsgerðisvelli og hefst kl. 17:00. Mótið er jafnframt einn af viðburðum Jónsmessuhátíðar sem er á Hofsósi þessa helgi. Keppt verður í A og B-flokki, barnaflokki, unglinga og ungmennaflokki. Skráning er gegnum netfanginu halegg@simnet.is eða í síma 453-7904.