Skref aftur á bak hjá Sjónvarpinu
Ríkissjónvarpið sýndi áður Circus Billy Smart um áramót. Nú er það bara Circus Jóhönnu Sig. Herra Hundfúlum finnst þetta skref aftur á bak.
Fleiri fréttir
-
Draumur Stólastúlkna varð ekki að veruleika þetta vorið
Draumur Stólastúlkna um sæti í Subway-deildinni í haust rættist ekki þetta vorið en mikið óskaplega voru þessir síðustu þrír leikir gegn liði Aþenu spennandi. Fjórði leikur liðanna fór fram í Síkinu í gærkvöldi og lið Tindastóls varð að næla í sigur til að tryggja sér oddaleik. Leikurinn var hnífjafn – þá erum við að tala um að hann var HNÍFJAFN allan tímann – og staðan til dæmis 72-72 þegar tvær mínútur voru til leiksloka. Eins og í þriðja leiknum reyndist Sianni Martin það sem skildi á milli á lokasekúndunum og lið Aþenu gerði fimm síðustu stig leiksins. Lokatölur 72-77 og Aþena vann þar með einvígið 3-1.Meira -
Leikjum ýmist frestað eða þeir færðir til
Sauðárkróksvöllur er í lamasessi líkt og flestum ætti að vera kunnugt. Meistaraflokkur karla hjá Tindastóli átti að hefja keppni í 4. deild í kvöld og spila heima gegn liði Skallagríms. Leiknum hefur hins vegar verið frestað og færður aftur í júníbyrjun. Þá átti Bestu deildar lið Tindastóls að spila við Fylki á Króknum á morgun, fimmtudag, en sá leikur verður spilaður á Akureyri.Meira -
Blanda og Svartá til leigu frá og með sumrinu 2025
Húnahornið greinir frá því að laxveiðiárnar Blanda og Svartá hafi verið auglýstar til leigu frá og með sumrinu 2025. Einkahlutafélagið Starir er með vatnasvæðið á leigu í dag en núgildandi leigusamningur rennur út í haust. Því óskar Veiðifélag Blöndu og Svartár eftir tilboðum í leigu eða umboðssölu á öllum veiðirétti félagsins í laxveiðiánum frá og með sumrinu 2025 til og með 2029 með almennu útboði.Meira -
Sr. Guðrún Karls Helgudóttir næsti biskup Íslands
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Fréttir 07.05.2024 kl. 15.15 gunnhildur@feykir.isNú liggur það ljóst fyrir hver verður biskup Íslands eftir síðari umferð biskupskosninganna lauk á hádegi í dag 7. maí og hlaut Sr. Guðrún Karls Helgudóttir flest atkvæði 1060 eða 52,19%. Sr. Guðmundur Karl Brynjarsson fékk 954 atkvæði eða 46,97%.Meira -
Katrín heimsækir Norðurland vestra
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Mannlíf 07.05.2024 kl. 14.40 oli@feykir.isFyrstu kappræður þeirra tólf frambjóðenda sem stefna á Bessastaði fóru fram í Sjónvarpinu sl. föstudag og vöktu talsverða athygli og gott áhorf. Nú eru tæpar fjórar vikur til kjördags og því eru forsetaefnin komin á fulla ferð í eltingaleiknum um atkvæði kjósenda. Katrín Jakobsdóttir er mætt til leiks og er á ferð um landið en næstu tvo daga verður hún á Norðurlandi vestra; fundar á Blönduósi og Sauðárkróki miðvikudaginn 8. maí og á Hvammstanga degi síðar.Meira
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.