SKVH kaupir fiskihús á Hvammstanga

Sláturhús KVH festi kaup á fiskihúsinu á Hafnarbraut 5 á Hvammstanga undir lok síðustu viku en í húsinu mun fara fram vinnsla á hliðarafurðum sem falla til á sláturtíð, auk þess verða þar geymslur og nýting á frystiklefa. „Með þessum kaupum getum við unnið vörur hérna á Hvammstanga sem við höfum verið að keyra í önnur byggðarlög til vinnslu,“ segir Magnús Freyr Jónsson, framkvæmdarstjóri SKVH, í samtali við Norðanátt.is

Að sögn Magnúsar er alltaf að aukast það sem nýtt er af því sem fellur til við slátrun og hefur verið takmarkað pláss í sláturhúsinu til að vinna þær vörur, ásamt því að vinnsla á mörgum af þeim vörum passar ekki inn í það vinnsluferli sem á sér stað í sláturhúsinu. Magnús nefndir dæmi um það að ekki megi frysta garnir í sama frystiklefa og þar sem kjöt er fryst.

SKVH mun taka við húsnæðinu, sem er 1176 fm að stærð, á næstu dögum og samkvæmt Magnúsi Frey er þörf á einhverjum framkvæmdum áður en það verður tekið í notkun. Þar verður t.d. sett upp aðstaða til að vinna þær afurðir sem til stendur að vinna þar og svo verður húsið málað næsta sumar í litum sláturhússins. Að sögn Magnúsar munu einhver störf skapast við þetta á meðan á sláturtíð stendur.

 

Fleiri fréttir