SKVH og KS hækka verð á nautakjöti
Sláturhús KVH og KS hækkuðu verð á nautakjöti til bænda frá og með síðustu mánaðamótum og eru nú meðal þeirra sem bjóða hæstu verð á markaðnum. Samkvæmt verðskrá Félags kúabænda yfir nautgripakjöt hjá sláturleyfishöfum eru verðin þau sömu hjá þeim og SS.
Þannig fæst kr. 592,- fyrir UN 1 A hjá þessum þremur aðilum, 561,- fyrir UN 1 B, 522,- fyrir K 1 U A og 511,- fyrir K 1 A svo eitthvað sé nefnt.
Nautakjötssala hefur aukist milli ára en heildarframleiðsla nautgripakjöts 12 mánuði frá febrúar 2011 var 4.026 tonn samkvæmt vef LK. Sé horft til sundurliðunar á sölu nautgripakjöts í febrúarmánuði var sem fyrr mest sala í ungnautakjöti eða 187 tonn og á 12 mánaða grunni nemur ungnautakjötssalan 2.296 tonnum eða 57,1% af heildarsölunni. Sala á kýrkjöti sömu 12 mánuðina var 1.451 tonnum eða sem nemur 36,1% af heildarsölunni.