Skvísuhittingur á Kaffi Krók
Í kvöld klukkan átta verður bleikt kvöld á Kaffi Krók sem jafnframt er fyrsti skvísuhittingur vetrarins. Skvísuhittingur er létt samverustund fyrir konur á öllum aldri sem vilja hittast og spjalla, fá sér létta máltíð og njóta samverunnar. Hittingurinn verður í hádeginu fyrsta föstudaginn í mánuði í vetur en í október langar okkur að byrja á Bleiku kvöldi til heiðurs Bleiku slaufunni og októberátaki Krabbameinsfélagi.
Kvöldið hefst á léttum skvísukvöldverði klukkan 20 og verður dagskrá kvöldsins spiluð af fingrum fram. Kvöldverður, létt hlaðborð, kostar kr 1800 og munu 10% af matarsölu renna til Krabbameinsfélags Skagafjarðar. Allir eru boðnir velkomnir og minnt á að skvísur eru á öllum aldri.