Skýrsla um stöðu upplýsinga- og tæknimála í grunnskólum Skagafjarðar

Árskóli á Sauðárkróki. Mynd: skagafjordur.is
Árskóli á Sauðárkróki. Mynd: skagafjordur.is

Stöðumat á innleiðingu spjaldtölvuverkefnis í grunnskólum Skagafjarðar er komið út. Var matið unnið af Fræðsluþjónustu Skagafjarðar í samráði við stjórnendur grunnskóla Skagafjarðar, Árskóla á Sauðárkróki, Varmahlíðarskóla og Grunnskólans austan Vatna á Hofsósi og Hólum. Einnig var unnin greining á upplýsinga- og tæknimálum í grunnskólunum á skólaárinu 2019-2020. 

Í tilkynningu frá Sveitarfélaginu Skagafjörður segir: „Tilgangurinn var fyrst og fremst að  varpa ljósi á hvaða árangri verkefnið hefur skilað en því var hleypt af stokkunum skólaárið 2014-2015,“ en í stöðumatinu voru búnar til sérstakar viðhorfakannanir sem lagðar voru fyrir nemendur 6. – 10. bekkja, kennara og foreldra/forsjáraðila nemenda í 6. – 10. bekkjum. Þá voru einnig upplýsingar úr innra mati skólanna rýndar sem og niðurstöður úr völdum spurningum úr Skólapúlskönnunum og óskað eftir greinargerðum frá skólastjórum um stöðu upplýsinga- og tæknimála í hverjum skóla.

Starfsfólk fræðsluþjónustu annaðist úrvinnslu gagna og skilaði skýrslu til fræðslunefndar og kynnti niðurstöður á fundi nefndarinnar 12. maí sl. Var niðurstaðan að mestu jákvæð á meðal starfsfólks og nemenda.

Ráðgert er að skýrslan verði rýnd með starfsfólki grunnskólanna í upphafi næsta skólaárs í þeim tilgangi að ígrunda hvert skuli stefna og gera áætlanir um umbætur þar sem þeirra er þörf. /SHV

Hér má skoða skýrsluna í heild sinni.

 

Fleiri fréttir