Sláturkostnaður og heimtaka
Á vef Kaupfélags Skagfirðinga er sagt frá því að undanfarin ár hafi Kjötafurðastöðin náð góðum árangri í bættri þjónustu á heimtökukjöti. Skilyrði fyrir því að áfram megi svo vera er að allar pantanir fyrir heimtöku skrokka berist í síðasta lagi degi fyrir slátrun. Nánari upplýsingar um pöntun á heimtöku má nálagast hér.
Sláturkostnaður fyrir heimtöku verður 170 kr./kg. og takmarkast við eðlilega heimanotkun og heimasölu bænda. Gjald fyrir fullorðið og veturgamalt eru 3050 kr./stk.
Ekkert gjald er tekið fyrir 7 parta sögun en kr. 30 á kg. fyrir fínsögun. Athugið að kostnaður á fínsögun er reiknuð á þurrvigt skrokks. Innmatur fylgir ekki heimtöku.
Kostnaður vegna úrkasts eru 550 kr./stk.
Heildarverðlista yfir sauðfjárslátrun má nálgast hér.