Sláturtíð hófst í gær hjá KS

Fyrstu lömb haustsins komu til slátrunar í sláturhús Kaupfélag Skagfirðinga í gær. Mun færra fé kemur nú fyrstu dagana en árin á undan og er þar um að kenna seinkun á réttardögum en víða á landinu var göngum og réttum seinkað um viku  vegna þess hversu gróður fór illa í sumar.

 

Að sögn Ágústs Andréssonar sláturhússtjóra er þetta afar slæmt fyrir sláturhúsið þar sem það er fullmannað og hægt að afkasta rúmlega helmingi meiru en gert er.  Þar sem húsið er að langstærstum hluta mannað erlendu verkafólki hafa ráðningar farið fram fyrir mánuðum síðan og þá búið að ákveða hvenær sláturtíð hefst og hvenær hún endar. Hætta er á að þetta verði til þess að löng biðröð skapist eftir slátrun fram eftir hausti bændum til angurs.

Fleiri fréttir