Sláturtíð Kjötafurðarstöð KS lokið
Sláturtíð hjá Kjötafurðarstöð KS lauk 28. október sl. og segir á heimasíðu KS að aldrei hafi verið slátrað eins miklu á átta vikum. Afsetning hefur gengið afar vel bæði á erlendum og innlendum markaði.
Heildarslátrun Kjötafurðarstöðvarinnar yfir árið er komið yfir 114 þúsund fjár en gert er ráð fyrir að sauðfjárslátrun verði í byrjun desember, í einn eða tvo daga. Meðalvigt dilka í sláturtíð var 15,79 kg.
Á heimasíðu KS kemur jafnframt fram að verulegt magn af kjöti hafi verið selt út fyrir landsteinana og var Kjötafurðastöðin langstærsti útflytjandi á kindakjötsafurðum í sláturtíðinni. Helstu markaðir voru sem fyrr Spánn, Asía og Bretland en einnig var selt til Rússlands og Færeyja. Hluti af gærunum fer í innlenda framleiðslu hjá Sauðskinn en að öðru leyti voru þær að mestu seldar til Tyrklands.