Smáhýsum komið fyrir í Kirkjuhvammi
Hafist var handa við að koma fyrir smáhýsum í Kirkjuhvammi á Hvammstanga sl. föstudag en eigandi þeirra er Reykjarhöfði ehf. og verða þau níu talsins. Eigendur Reykjarhöfða ehf. eru Kaupfélag Vestur Húnvetninga, Sláturhús KVH, Tveir smiðir ehf. og Vignir Skúlason.
Vignir Skúlason sagði í samtali við Norðanátt.is að smáhýsin séu ákveðin svörun við aukinni ferðaþjónustu á svæðinu og er þetta hugsað til að vera í samvinnu við aðra ferðaþjónustuaðila og gistimöguleika á svæðinu en ekki samkeppni. Þá er ráð fyrir að smáhýsin verði fyrir starfsmenn SKVH í tvo mánuði á ári, yfir sláturstíð.
Vel er lagt í smáhýsin og segir Vignir þau standast allar kröfur fyrir heilsársnotkun. „Þau eru 21 m2 að stærð og er svefnpláss fyrir allt að fjórar persónur þar sem í hýsunum eru 125cm breið neðri koja, 80cm efri koja og svefnsófi. Smáhýsin eru öll með salerni og sturtu, eldunaraðstöðu, borðbúnaði, ísskáp, sjónvarpi með innbygðum DVD-spilara, borðstofuborði, stólum o.fl. sem eykur á þægindin,“ segir um smáhýsin á Norðanátt.
Rekstur smáhýsanna hefst formlega þann 20. júlí nk. og að sögn Vignis er fyrsta helgin fullbókuð. Rekstraraðilar smáhýsanna eru Erla Björg Kristinsdóttir og Sveinn Ingi Bragason, en þau reka einnig tjaldsvæðið í Kirkjuhvammi. Þau annast öll samskipti við samstarfsaðila, bókanir og alla almenna afgreiðslu á útleigu húsanna. Hægt er að setja sig í samband við þau í símanúmerið 899-0008 og á netfangið hvammur.camping@gmail.com.