Smalaðist vel þrátt fyrir manneklu

Réttað var í Mælifellsrétt í fyrrum Lýtingsstaðarhreppi í gær eftir að Eyvindarstaðar- og Haukagilsheiði voru smalaðar ásamt heimalöndum en þar eins og víðast hvar annars staðar var smalamennsku flýtt vegna slæmrar veðurspár. Farið var af stað á þriðjudegi og smalað einsog mannskapur leyfði en samkvæmt heimildum Feykis gekk það ágætlega en var seinlegt.

Viðmælandi Feykis sagði að veðrið hefði verið fínt alla daga nema þann síðasta en sæmilega hefði smalast og megnið af fénu komið niður. Meðfylgjandi myndir frá Mælifellsrétt í gær tók  Hrönn Håkansson og sendi Feyki.

 

Fleiri fréttir