Smjörvél væntanleg í samlagið

Vinnsla í Mjólkursamlagi KS er að komast í fullan gang eftir miklar endurbætur sem þar áttu sér stað í lok síðasta árs. Að sögn Snorra Evertssonar samlagsstjóra hefur gengið vel að koma nýju húsnæði og búnaði í gagnið. 

Allt er því farið að ganga smurt ef svo má segja, nema hvað smjörvél er væntanleg og reiknaði Snorri með að hún kæmi í næsta mánuði. Eftir að lokið er við að koma hinni nýju vinnslu í gagnið verður farið í breytingar á  gamla húsnæðinu, að sögn Snorra.

Fleiri fréttir