Sögudagur á Sturlungaslóð á laugardag
Árlegur sögudagur félagsins á Sturlungaslóð í Skagafirði verður laugardaginn 20. ágúst næstkomandi. Dagskráin hefst í Miklabæjarkirkju kl 13 með erindi Sigríðar Sigurðardóttur, forstöðumanns Byggðasafns Skagfirðinga, um stórbýlið Miklabæ. Að erindinu loknu verður tónlistaratriði í kirkjunni. Síðan verður farið á Örlygsstaði þar sem sögumaður tekur á móti gestum og gangandi og segir frá Örlygsstaðabardaga. Leikir verða fyrir börnin á Örlygsstöðum meðan foreldrarnir hlýða á sögumanninn.
Kl 16 verður ganga að Fosslaug við Reykjafoss í Svartá. Mæting er sunnan við aðstöðuhúsin á Vindheimamelum.
Kl 20 er Ásbirningablót í Héðinsminni í Blönduhlíð þar sem bornar verða fram kræsingar að hætti miðaldamanna. Veislustjóri er Agnar Gunnarsson og fram koma m.a. Nanna Rögnvaldardóttir, Björn Björnsson og Kristín Halla Bergsdóttir.
Miðapantanir á blótið eru í Hótel Varmahlíð sími 453 8170 fyrir kl 22 föstudaginn 19. ágúst.
Nánari upplýsingar á sturlungaslod.is