Sögudagur og Ásbirningablót

Laugardaginn 17. ágúst verður sögudagurinn á Sturlungaslóð haldin í fimmta sinn. Að þessu sinni verður gestum og gangandi boðið í hringferð um Hegranesið undir leiðsögn Þórs Hjaltalíns minjavarðar Norðurlands vestra. Um kvöldið verður svo haldið Ásbirningablót í Kakalaskála.

Mæting er við Hegranesþingstað kl 13 þar sem Þór segir frá staðnum og þaðan verður haldið í Ás, fyrrum höfuðból Ásbirninga, og endað í Keldudal þar sem miklar fornminjar hafa fundist. Þátttakendur keyra á milli staðanna á einkabílum.

Um kvöldið kl 20 hefst Ásbirningablótið í Kakalaskálanum hjá Sigurði Hansen í Kringlumýri. Bjarni Harðarson frá Selfossi, bóksali með meiru, mun flytja erindi ásamt Skúla Gautasyni menningarfrömuði í Hörgárbyggð og Snigli með meiru. Ólöf Ólafsdóttir og Friðrik Jónsson verða með tónlistaratriði og veislustjóri er Sigurður Hansen. Hótel Varmahlíð framreiðir miðaldakræsingar að vanda. Miðaverð er 4.000 kr og panta þarf fyrir kl 18 föstudaginn 16. ágúst í síma 453 8170.

/Fréttatilkynning

Fleiri fréttir