Sögusetur íslenska hestsins fær styrk til þátttöku á LM 2016
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd Svf. Skagafjarðar samþykkti að styrkja Sögusetur íslenska hestsins til þátttöku á LM 2016 í Skagafirði á fundi sínum þann 12. febrúar síðastliðinn. Styrkurinn nemur kr. 1.000.000,-
„Tekið fyrir erindi frá Sveini Ragnarssyni, formanni stjórnar Söguseturs íslenska hestsins, þar sem óskað er eftir styrk vegna þátttöku Söguseturs íslenska hestsins, á Landsmóti hestamanna sem haldið verður á Hólum í Hjaltadal í sumar. Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd þakkar fyrir erindið og samþykkir að styrkja Sögusetrið um kr. 1.000.000,“ segir í fundargerð.