Sögusetur íslenska hestsins opið í september

Á heimasíðu á Söguseturs íslenska hestsins kemur fram að það verði opið alla virka daga frá 10-12 og 13-16 út september. Einnig verður opið um næstu helgi í tilefni af Laufskálarétt.

Sögusetur íslenska hestsins var stofnað að Hólum í Hjaltadal 9. júní 2001 af Hestamiðstöð Íslands, Byggðasafni Skagfirðinga og Hólaskóla. Sögusetrið var gert að sjálfseignarstofnun árið 2006 og eru stofnaðilar hennar Byggðasafn Skagfirðinga og Hólaskóli.

Sögusetur íslenska hestsins er alþjóðleg miðstöð þekkingar og fræðslu um íslenska hestinn og heldur einnig úti öflugu sýningarstarfi. Í gömlu hesthúsi sem stendur í hjarta Hólastaðar hefur Sögusetrið komið upp sýningunni Íslenski hesturinn og var hún opnuð 14. ágúst 2010. Sýningin miðlar með lifandi og fjölbreyttum hætti samspili hests og þjóðar. Í húsinu eru einnig sérsýningar.

 

Fleiri fréttir