Sögustund á Reynistað í kvöld
Félagið á Sturlungaslóð mun bjóða upp á sögustundir alla miðvikudaga í júlí. Í kvöld kl 20 mun Sigríður Sigurðardóttir taka á móti gestum í Reynistaðakirkju og er aðgangur ókeypis og allir velkomnir.
Næsta sögustund verður í Auðunarstofu þann 10. júlí, síðan í Kakalaskála 17. júlí og loks í Víðimýrarkirkju þann 24. júlí.