Sóldísir með tónleika í Reykholti og Akranesi
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Listir og menning
26.03.2014
kl. 15.45
Kvennakórinn Sóldís verður á ferðinni um næstu helgi og ætlar að halda tónleika í Borgarfirði. Tónleikar Sóldísa verða laugardaginn 29. mars kl. 15 í Reykholtskirkju og kl. 20 í Tónbergi á Akranesi.
Kórinn var stofnaður á hausdögum 2010 af þremur konum í Skagafirði og samanstendur nú af 43 konum úr Skagafirði og Húnavatnssýslu, auk söngstjóra og undirleikara, en söngstjóri er Sólveig S Einarsdóttir og undirleikari Rögnvaldur Valbergsson. Á þessu söngári er þemað hjá kórnum „íslenskir textar og íslenskir textahöfundar“.