Sönghópurinn Spectrum kemur norður!

Tónleikar sönghópsins Spectrum verða haldnir í Sauðárkrókskirkju laugardaginn 28. september kl. 17:00 og í Akureyrarkirkju sunnudaginn 29. september kl. 17:00. Flutt verður verkið “Requiem” eða Sálumessa eftir John Rutter undir stjórn söngkonunnar Ingveldar Ýrar. Spectrum flutti verkið í Neskirkju í Reykjavík vorið 2012 við frábærar undirtektir. Með hópnum spila þær Sigrún Magna Þórsteinsdóttir organisti við Akureyrarkirkju, Ásdís Arnardóttir sellóleikari og tónlistarkennari á Akureyri, en þess má geta að margir meðlimir Spectrum eru ýmist fæddir og uppaldir fyrir norðan eða hafa flutt þangað á seinni árum.

Nánar um verkið:

John Rutter er eitt helsta kórtónskáld í heiminum í dag. Einfaldleiki, stílhreinar sönglínur og aðgengileg tónlist hafa einkennt verk hans. Requiem sem þýðir “hvíld” samdi hann skömmu eftir að hann missti föður sinn. Hann langaði að semja verk sem allir gætu notið, bæði lærðir og ólærðir í tónlist eins og faðir hans var. Verkið var frumflutt í Bandaríkjunum árið 1984 og varð strax gríðarlega vinsælt þar í landi, með um 500 uppfærslur strax á fyrsta ári. Hér á landi hefur það aðeins verið flutt einu sinni áður og er Spectrum það sönn ánægja að kynna verkið betur.

Sönghópurinn Spectrum var stofnaður árið 2003 og hefur starfað sleitulaust síðan undir handleiðslu Ingveldar Ýrar söngkonu. Fjölbreytileiki, lífleg framkoma og metnaður hefur einkennt hópinn, en hann hefur flutt margar nýstárlegar útsetningar þekktra laga, auk þess að kynna óþekktari verk. Spectrum kemur fram við ýmis tækifæri, söng t.d. á kosningavöku bandaríska sendiráðsins 2008 og í tónleikaröð Háskólans á Bifröst 2009.

Stjórnandinn, Ingveldur Ýr, er mörgum kunn sem söngkona og söngkennari. Hún hefur um árabil rekið eigin skóla; Söngstúdíó, og haldið þar námskeið af ýmsum toga. Einnig hefur hún sungið fjölmörg óperuhlutverk og haldið tónleika, bæði hér á landi og erlendis. Árið 2009 gaf hún út söngdiskinn Portrett sem inniheldur lög af ferli hennar. Vorið 2013 lauk Ingveldur Ýr kórstjóranámi hjá Herði Áskelssyni í Tónskóla Þjóðkirkjunnar.

Sönghópurinn Spectrum ásamt stjórnandanum Ingveldi Ýri.

Fleiri fréttir