Sporin eftir kajakræðara
Sporin í fjörunni í Vatnsnesi sem voru talin merki um ferðalag ísbjarnar upp á land í síðustu viku voru eftir tvo kajakræðara sem þar voru á ferðalagi. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag.
„Við vorum náttúrlega þarna í fjörunni og þegar maður spyrnir í mölina þá kemur svona far eftir mann. Ég er búin að reyna þetta á öðrum stað til þess að reyna að sjá það út hvernig spor ég bý til þegar ég er í átaki, að draga bát. Og þá kemur það náttúrlega svona,“ sagði Gunnhildur Stefánsdóttir sem var á kajakferðalagi á þessum slóðum ásamt Árna Birni Stefánssyni, eiginmanni sínum og áðu hjónin í fjörunni neðan við Geitafell.
Hjónin höfðu strax samband við lögreglu eftir að þau sáu rákina eftir kajakinn í fjörunni þegar meint ísbjarnarspor voru sýnd í sjónvarpinu og tilkynntu að sporin væru nær örugglega eftir þau. Hjónin ítreka að þau hafi ekki rekist á neina birni á ferðalagi sínu.
„Nei, en við urðum vör við útseli þarna, afskaplega stóra og feita og gamla og gráa útseli, sem voru þarna ekki langt frá okkur og hugsaði ég þá að þetta væru nú meiri skepnurnar,“ sagði Gunnhildur Stefánsdóttir kajakræðari.