Staðarrétt - fyrri rétt af tveimur
Réttað var í fyrri rétt af tveimur í Staðarrétt í Skagafirði í gær en bændur í fyrrum Skarðs- og Seyluhreppum í Skagafirði héldu í göngur snemma í gærmorgun.
Smalamennskan gekk þokkalega í gær, allavega var veður nokkuð hagstætt. Rekið var út Sæmundarhlíð í fjórum hópum, trúlega á milli fjögur og fimm þúsund fjár.
Réttað verður aftur í Staðarrétt í dag. Eflaust eru allar hendur vel þegnar til að aðstoða við réttarstörfin.
Ari Jóhann Sigurðsson tók nokkrar myndir úr réttunum í gær.
.