Stærsta ferðasumar sögunnar í Húnaþingi
Á heimasíðu Selasetursins segir að það sé nú orðið ljóst að sumarið 2009 er eitt stærsta ferðasumar í Húnaþingi vestra frá upphafi. Flestir ferðaþjónustuaðilar í héraðinu telja að um umtalsverða aukningu hafi verið að ræða frá fyrra ári, þá einkum í júní og ágúst og hleypur aukningin hjá flestum á bilinu 50 – 150%.
Umferð um Vatnsnes hefur verið þung í sumar þar sem þúsundir manna hafa skoðað seli og notið fagurrar náttúru. Hlutfallslega hefur erlendum ferðamönnum fjölgað mest, en aukning innlendra ferðamanna var einnig þó nokkur.
Aðstandendur kynningarátaksins Á selaslóðum, sem styrkt var af Vaxtarsamningi Norðurlands vestra, vakti heilmikla athygli á svæðinu sem ákjósanlegum áfangastað fjölskyldunnar.