Stanslaust fjör frá fimmtudegi til sunnudags
Skagfirskir lummudagar verðar haldnir um næstu helgi, en þeir eiga fimm ára afmæli í ár. Feykir náði tali af Sigríði Ingu Viggósdóttur, framkvæmdastjóra hátíðarinnar, þar sem hún var nýkomin af fundi og á kafi í undirbúningi ,sem hún segir ganga vel.
Að sögn Sigríðar Ingu verður hátíðin með hefðbundnu sniði. Hún segir Lummudaga hafa ákveðna sérstöðu þar sem ekki sé veitt miklu fjármagni í hátíðina og því sé allt heimatilbúið sem að henni snýr, og það sé virkri þátttöku Skagfirðinga að þakka að náðst hafi að halda Lummudaga í þessi fimm ár. Helsta nýjung hátíðarinnar í ár er Árnahlaupið, en það er hlaupið til heiðurs Árna Stefánssyni íþróttakennara sem verður sextugur í ár. Einnig ríkir ákveðin spenna yfir þeim áformum Gærunnar að kynna þá tónlistarmenn sem þar koma fram á götumarkaðnum á laugardaginn, en Gæran verður haldin í ágúst. Lummudagar hefjast í Litla-Skógi seinnipart fimmtudags og þeim lýkur með með formlegri opnun smábátabryggjunnar á sunnudaginn.
Sigríður Inga vill hvetja Skagfirðinga til virkrar þátttöku. Hún segir alltaf vera eitthvað um að menn bjóði upp á heitar lummur og hvetur fleiri til að gera það, og hengja hvítar blöðrur á hús sín til auðkenningar. „Svo hvet ég fólk til að missa sig í skreytingum, en þær hafa verið bæði miklar og skemmtilegar. Veðurspáin er góð, enda er ekki til vont veður heldur frekar illa búið fólk. Ég óska öllum gleðilegra lummudaga,“ sagði Sigríður Inga „lummustýra“ að lokum.
Meðal tónlistarfólks sem fram kemur á Lummudögum eru Hreindís Ylfa og drengirnir hennar, Ingunn Kristjáns og Reynir Snær, og hin þekkta hljómsveit úr Túnahverfinu, Úlfur Úlfur.
Dagskrá Lummudaga:
Fimmtudagur 27. júní
Kl. 18:00 Fjör í Litlaskógi (upp við “sundlaugina”)
Leikir
Útieldun
Fiskisúpa kl. 19:00
Tónlistaratriði
Föstudagur 28. júní
Kl. 10 - 11 Lummukaffi hjá Leikskólanum Ársölum yngra stig
Krakkarnir á yngri stigi Ársala bjóða foreldrum/forráðamönnum í lummukaffi
Kl. 14 - 15 Lummukaffi hjá Leikskólanum Ársölum eldra stig
Krakkarnir á eldra stigi Ársala bjóða foreldrum/forráðamönnum í lummukaffi
Kl. 15:00 Sápufótboltamót í Ártúni
Kl. 19:00 Götugrill
Kl. 20:00 Villtir svanir og tófa (Húsið opnar kl. 20:00)
- Tónleikar í Bifröst – Fjöldi hljómsveita koma fram
Laugardagur 29. júní
Kl. 09:00 Árnahlaup start á íþróttavellinum
Þeir sem vilja ganga 17,6 km.
- Árnahlaup er á Facebook
Kl. 13 – 17 Götumarkaður – Lifandi tónlist
Úlfur Úlfur,
Hljómsveit Hreindísar Ylfu,
Ingunn Kristjáns og Reynir Snær og fl.
GÆRAN kynnir listamenn sem koma fram á hátíðinni
Bílaklúbbur Skagafjarðar verður með kassabílarallý.
Og margt fleira í boði.
Kl. 21:00 Hreindís Ylfa og hljómsveit með tónleika í Bifröst
Kl. 23:00 Mælifell dansleikur
Paparnir leika fyrir dansi.
Sunnudagur 30. júní
Kl. 13:00 Nýja smábátahöfnin formlega tekin í notkun
Alla daga: Gallerý Lafleur – Ýmsar uppákomur
Opið 12 – 22.