Starfræktur í 30 ár

Reiðskóli Ingimars Pálssonar tók til starfa árið 1983. Skólinn var fyrst rekinn í nafni Ingimars Pálssonar en hefur síðustu ár starfað undir nafni Topphesta. Á þessum 30 árum hafa 2700 – 3000 manns tekið þátt í námskeiðum á vegum Reiðskólans. Í sumar hafa rúmlega 100 börn og unglingar verið á reiðnámskeiði, en eitt námskeið er eftir af þremur.

Á þessum 30 árum hefur Reiðskólinn farið með starfsemi sína á Ólafsfjörð, Siglufjörð og Skagaströnd. Frá því að reiðhöllin var tekin í notkun hefur Reiðskólinn einnig staðið fyrir Reiðþjálfun fatlaðra yfir vetrartímann.

Annar ættliður af þátttakendum og hrossum eru og hafa verið að taka þátt í námskeiðum Reiðskólans undanfarin ár og þriðji ættliður af starfsmönnum.

Þess má til gamans geta að dæmi eru um það að foreldri og barn hafi verið á sama hestinum á reiðnámskeiði með nokkuð margra ára millibili.

Fleiri fréttir