Starfsár Lóuþræla að hefjast

Nú er 27. starfsár karlakórsins Lóuþræla að hefjast en kórinn telur 28 manns þetta árið. Stjórnandi kórsins er Guðmundur St. Sigurðsson en undirleikari Elinborg Sigurgeirsdóttir.

Samkvæmt heimasíðu Lóþræla verður lagaval kórsins með svipuðu sniði og seinasta starfsár en þá voru flutt létt og skemmtileg popplög, bæði á ensku og íslensku við undirleik fjögurra manna hljómsveit.

En í desember verða sungin jólalög sem koma okkur í hátíðarskap fyrir jólin.

Drög að dagskrá fram að áramótum er með þessu móti:

  • Miðvikudagur 5. des. 2012 kl 20:00 Söngur á sjúkrahúsinu Hvammstanga
  • Fimmtudagur 6. des. 2012 kl. 20:30  Jólatónleikar á Skagaströnd
  • Miðvikudagur 12. des. 2012 kl. 20:30 Jólatónleikar í grunnskólanum á Borðeyri
  • Fimmtudagur 13. des. 2012 kl. 20:30 Jólatónleikar í Félagsheimilinu Hvammstanga

 

Fleiri fréttir