Starfsemi KS skert frá og með morgundeginum 10. maí

Í ljósi stöðunnar í Skagafirði vegna Covid-19 þá mun starfsemi Kaupfélags Skagfirðinga og dótturfélaga á Sauðárkróki verða skert frá og með mánudeginum 10. maí til og með föstudeginum 14. maí. Hér má sjá yfirlit um lokanir og hvert viðskiptavinir fyrirtækjanna geta snúið sér ef þeir þurfa á þjónustu að halda:

Skagfirðingabúð
Verslunin verður opin mánudaginn 10. maí með hefðbundnum hætti. Tilkynnt verður með lengdan opnunartíma á þriðjudag. Hægt er að panta vörur í síma 455 4545 til að fá heimsendingu. Viðskiptavinir eru beðnir um að greiða fyrir vörur með kreditkorti eða millifærslu.
Einnig má senda pantanir í tölvupósti á netfangið pantanir@skagfirdingabud.is – vinsamlegast gefið upp nafn og símanúmer í tölvupóstinum og starfsmenn verslunarinnar hafa samband þegar pöntunin er tilbúin til afgreiðslu.
Í versluninni er grímuskylda og allir viðskiptavinir eru beðnir að nota einnota hanska sem eru í boði á staðnum.

Verslanir KS Hofsósi og Ketilási
Þessar verslanir munu hafa óbreyttan opnunartíma. Í verslununum er grímuskylda og allir viðskiptavinir eru beðnir að nota einnota hanska sem eru í boði á staðnum.

Verslunin Eyri – Byggingavörudeild
Verslunin verður lokuð en hægt verður að panta vörur í síma sem afhentar verða við innganginn eða í vöruporti. Vinsamlegast hafið samband í síma 455 4610, 455 4627 eða 455 4620.
Einnig má senda pantanir í tölvupósti á gudlaugur.skulason@ks.is eða bjorn.svavarsson@ks.is vinsamlegast gefið upp nafn og símanúmer í tölvupóstinum og starfsmenn verslunarinnar hafa samband þegar pöntunin er tilbúin til afgreiðslu.

Kjarninn – Bíla- og Vélaverkstæði
Bæði verkstæðin verða lokuð en hægt er að hafa samband í síma ef viðskiptavinir þurfa nauðsynlega að leita eftir þjónustu.
Símanúmer fyrir Bílaverkstæði eru 825 4570 Benedikt, 825 4572 Rúnar Már og 825 4574 Gunnar Þór.
Símanúmer fyrir Vélaverkstæði eru 825 4564 Páll og 825 4562 Hjörtur

Kjötafurðastöð
Starfsemi verður með hefðbundnum hætti eins og kostur er en allt aðgengi utanðkomandi aðila er bannað. Hægt er að ná í starfsmenn í síma ef þörf er á, sjá upplýsingar um símanúmer https://www.ks.is/starfsemi/kjotafurdastod/

Mjólkursamlag
Starfsemi verður með hefðbundnum hætti eins og kostur er en allt aðgengi utanðkomandi aðila er bannað. Hægt er að ná í starfsmenn í síma ef þörf er á, sjá upplýsingar um símanúmer https://www.ks.is/starfsemi/mjolkursamlag-/

Skrifstofa
Starfsemi verður með hefðbundnum hætti eins og kostur er en allt aðgengi utanðkomandi aðila er bannað. Vinsamlegast hafið samband í síma 455 4500.
Einnig má sjá símanúmer deilda KS á heimasíðu félagsins https://www.ks.is/starfsemi/

Vörumiðlun
Afgreiðsla og endurvinnslumóttaka verður lokuð en hægt er að fá sendingar afhentar út fyrir húsið. Vinsamlegast hafið samband í síma 455 6600 til að fá upplýsingar um sendingar.

Tengill
Afgreiðsla og verkstæði í Kjarnanum verða lokuð. Tengill mun sinna neyðarþjónustu eftir aðgerðaáætlun fyrirtækisins. Vinsamlegast hafið samband í eftirtalin neyðarsímanúmer: 455 9200 Tengill, 858 9205 Páll Ólafsson og 858 9201 Gísli Sigurðsson.
/Fréttatilkynning

 

 

 

 

 

Fleiri fréttir