Starfsmann vantar við skólabúið á Hólum

Hólaskóli-Háskólinn á Hólum auglýsir eftir starfsmanni við skólabú háskólans í tímabundið starf. Á ábyrgðar- og starfssviði viðkomandi eru umhirða hesta og almenn bústörf inni og úti.


Menntunar- og hæfniskröfur:
Reynsla af umhirðu hesta og almennum bústörfum æskileg.
Aukin ökuréttindi kostur.
Góð hæfni í mannlegum samskiptum og samvinnu.

Um er að ræða 100% stöðu,  launakjör samkvæmt kjarasamningum viðkomandi stéttarfélags við ríkið. Um starfskjör, réttindi og skyldur gilda að öðru leyti lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.
Umsóknarfrestur er til 10. september 2013. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf strax.
Starfið hentar jafnt konum sem körlum.
Nánari upplýsingar veitir Eysteinn Steingrímsson bústjóri  í síma 898 6648 eða Sveinn Ragnarsson deildarstjóri í síma 455 6300.

Fleiri fréttir